View allAll Photos Tagged OG
Brúðkaupsferð 2015
Brúðkaupsferðin okkar, Ásdísar og Guðjóns, 27.07.0- 2015.
Við giftum okkur laugardaginn 25. Júlí sl. og ákváðum að fara í brúðkaupsferðalag um Vestfirði.
Eftir snúninga í Borgarnesi héldum við af stað seinni part dags. Fórum Bröttubrekku og áðum í svo Hvammsfirði. Við töluðum við mömmu, sem var himinlifandi yfir brúðkaupinu okkar, eins og reyndar allir sem við æst héldum við inn Gilsfjörð en ekki yfir hann. Meiningin var að Ásdís fengi að prófa „ morgungjöfina‘‘ reiðhjólið, þar sem væri friður og ró. Það gekk bara vel, þó langt sé síðan síðast. Steina, tíkin okkar sem er fjögurra mánaða lærði að það eru til girðingar, hljóp á fullri ferð beint á netið.
Benzinn virðist ætla að standast allar væntingar, sem betur fer. Við erum mjög ánægð og hamingjusöm.
28. 7. Vöknuðum seint í dag því við fórum seint að sofa. Við notuðum okkur góða veðrið og fórum í sund. Innst í Gufufirði þurfti að laga viftureimina, eftir að hún losnaði af á leiðinni yfir heiðina frá Djúpafirði, þá kíktum við á slysavarnarskýli á Klettshálsi, frekar sóðalegt þar. Síðan þegar við komum til Patreksfjarðar keyrðum við að flugvellinum, tókum þar góðan hjólatúr, og gistum þar síðan um nótti
29. 7.
Lögðum af stað frá flugvellinum og héldum aðeins til baka inn á Rauðasand. Við gmjög áhugavrengum út frá bílastæðinu og niður í fjöruna. Steina fékk mikinn félagsskap dauðhrædd við sjóinn og stóru hundana
Við fórum inn í kirkjugarðinn við Saurbæ. Þar var m.a. legsteinn þar sem 4 börn, öll á fyrsta eða öðru ári en konan hefur látist við fæðingu yngsta barnsins rúmlega fertug að aldri. Maðurinn lifði til 95 ára aldurs. Þarna var líka legsteinn við leiði konu, sem á stóð „ ekkja´´ ekkert meira um hana.
Í Breiðavík var skipt um viftureim, ein 1285 og önnur 1300 en þær voru meðferðis. Réttu reimarnar eru 13x1300. Þegar við svo ætluðum að halda áfram, sprakk á bílnum.
Áður en komið er að Breiðuvík, vegur 612 stoppuðum við hjá Hnjóti og skoðuðum byggðasafnið þar.
Virkilega áhugavert safn.
Á leiðinni upp úr Mikladal upp á Hafnarfjall, þurftum við að snúa við til að leita að því. Því miður skemmdist hjólið nokkuð við þetta. Það var víst Hænuvík, sem hjólið datt af hjólagrindinni. ( svo stendur hér skrifað að hjólið hafi dorrið af nærri HænuvÍk).
Næst héldum við að Látrabjargi og komum þangað um miðnættið. Veðrið var æðislegt eins og hingað til. Við gistum svo um nóttina nálægt Hótel Látrabjargi.
30.7.
Ókum áfram vestur, alla leið í Kollsvík. Börnin hennar Ásdísar eiga ættir að þekja þangað, þar sem langafi þeirra í föðurætt var frá Kollsvík og amma þeirra ólst þar upp. Þar hittum við Steinu Þorvalds.Á leiðinni til baka komum við aftur við að Hnjóti og skoðuðum gömlu sölurútuna ,, Verkfæri, járnvörur og vítamín“, fengum okkur snarl við elsta stálskip landsins Stöpudal. Héldum svo áfram til Patreksfjarðar, þar sem við fórum á dekkjaverkstæði, fengum þar nýtt dekk og bót reiðjólabarðann. Síðan fengum við okkur ís og komum við á tjaldstæðinu þar sem við fengum okkur að borða Eftir matinn skoðuðum við bæinn, en þar eru mörg gömul falleg hús. Fórum að hafnargarðinum þar sem við gistum.
31. júlí.
Ja hérna, nú líður að hausti…
Vöknuðum um kl. 9 og héldum svo áfram til Bíldudals . Héldum ferðinni áfram í Selárdal,Veðrið þar var frekar leiðinlegt en við komið. Skoðuðum stytturnar og kirkjuna. Þar var verið að endurbyggja íbúðarhúsið hanns Samúels. Næst héldum við áfram að bænum Uppsölum, bænum hans Gísla. Þar var verið að endurbæta íbúðarhúsið. Búið að setja nýtísku ( ljóta ) glugga og ljótt viðarlíki í loftið.
Á Bíldudal ókum við aðeins um þorpið.
Héldum svo áfram að Dynjandisheiði og skoðuðum skilti um Gísla Súrsson. Við gistum við Dynjanda í kalsaveðri, Steina var dauðhrædd við kríurnar, elduðum okkur mat, áður en haldið var áfram ferðinni.
1.8.
Komum við í Mjólkárvirkjun , Hrafnseyri og smá viðkoma á Þingeyri. Þá fórum við yfir Gemlufallsheyði, Botnsheiði og beint á Ísafjörð. Við Bónus hittum við Anton og Bilgju,
en þau höfðu fengið bambann lánaðan til að fara vestur á Ísafjörð um verslunarmannahelgina.
Annars var lítið um stopp, örlítið á Reykjanesi, upp Steingrímsfjarðarheiði en fórum svo Þoskafjarðarheiði, Kollafjarðarheiði og síðan stoppuðum við í Búðardal og þaðan beina leið í Borgarnes. Við lögðum bílnum við hafnargarðinn eftir um 400 km. erfiðan akstur, sem hefndi sín daginn eftir.
2.8.
Ásdís var mætt hjá Inger snemma um morguninn, til að hjálpa henni og vinna á Skúlagötunni.
Guðjón lá fyrir lasinn til kl. 14. Við borðuðum hjá Inger og tókum smá hjólatúr sem var mjög gaman. Eftir það skruppum við í bústaðinn í Skorradal og síðan heim til Reykjavíkur.
Willie Benson get's his hair cut by volunteers from OG's School of Hair Design during the Homeless Triage event in downtown Killeen June 16th 2018