Back to photostream

Jónína Brynja Ís 55

Jónína Brynja ÍS 55

Skipaskr.nr.: 2828

Smíðaður: Hafnarfirði 2012 plast

Stærð: brl; 14,95 bt

Lengd: 12,62 m Breidd: 4,40 m Dýpt: 1,24 m

Vél: ISUZU 377,00 kW Árgerð: 2012

Annað:

Fjöldi skipverja: 2

 

Þann 25. nóvember 2012 var línuveiðibáturinn Jónína Brynja ÍS 55 á siglingu til Bolungarvíkur. Veður: SV 11-12 m/s og talsverður sjór.

 

Báturinn hafði farið úr höfn um kl. 04:45 og verið á línuveiðum norður af Straumnesi frá því um kl. 07:50 um morguninn. Um kl. 17:00 var haldið til hafnar en á leiðinni sofnaði stjórnandi hans og kl. 18:53 strandaði Jónína Brynja ÍS í stórgrýti við Straumnesfjall á stað, 66°26‘197N og 023°06‘132V. Jónína Brynja ÍS á strandstað

 

Kl. 18:58 sendu bátsverjar út neyðarkall á VHF 16 og í AIS kerfi. Þeir fóru í flotbjörgunarbúninga, settu út kaðal framan á bátnum og yfirgáfu hann við slæmar aðstæður. Kallaðar voru út björgunarsveitir og haft samband við skip á svæðinu auk þess að þyrla LHG var kölluð út. Kl. 20:54 var þyrlan búinn að ná bátsverjunum um borð og kl. 21:09 lenti hún með þá á Ísafirði.

 

Jónína Brynja ÍS 55 var mikið skemmd og ekki hægt að draga hana af strandstað en björgunaraðilum tókst að bjarga mikið af búnaði.

 

Um borð í bátnum voru um sex tonn af fiski í körum í lest og 36 línubalar á þilfari.

 

 

 

2,080 views
0 faves
0 comments
Uploaded on June 2, 2013
Taken on November 3, 2012