Back to photostream

Snowstorm in D.C.?

Á þriðjudaginn fór ég til Washington D.C. til að taka þátt í Fulbright

ráðstefnu. Ráðstefnan var um Civic Engagement svo ég get nú ekki sagt að

þetta hafi verið neitt tengt því sem ég er að læra. Nú veit ég hins

vegar heilmikið um kosningakerfi Bandaríkjanna, hvernig þeir reyna að

hafa gegnsæi í öllu, hin mismunandi samtök sem reyna að hafa áhrif á

þingmennina, lobbyista og hvað okkar kynslóð telur sig einstaka en

nennir ekki að kjósa (Í e-rri könnun sem var gerð kom í ljós að þessi

kynslóð er líklegri til að reyna að hafa áhrif á hvað aðrir kjósa en að

mæta sjálf á kjörstað!. En kannski öllu framar fékk ég að skoða borgina

og kynnast helling af fólki frá 80 mismunandi löndum (og sumum sem ég

verð að játa að ég vissi ekki einu sinni hvar voru, úbs;)). Vá hvað ég

vildi að ég gæti gert e-ð svona oftar!

 

Ég tók næturflug og lenti því á miðvikudag í D.C. og alveg nokkrum tímum

áður en ég átti að mæta. Bryan sem er með mér í verkfræði hérna en er

þaðan benti mér á að fara í Georgetown að versla og labba meðfram

canalnum svo ég náttúrulega gerði það. Svo skemmtilega vildi til að þar

var einmitt HogM búð:) Þar sem þær eru ekki til í Californiu hálf

trylltist ég í búðinn og keypti náttúrulega allt of mikið:)

 

Dagarnir voru fullskipaðir frá morgni til kvölds svo ég ætla nú ekki að

fara í alla liði;) Tvennt (af skipulögðu dagskrárliðunum) stóðu upp úr.

Við fórum í highschool og áttum að kynna landið okkar. Það var bæði

gaman að kynnast krökkunum og læra um lönd hinna krakkanna (Kambódíu,

Dóminíska lýðveldið, Perú og Pakistan). Nú svo var okkur boðið í mat

til fólks í nágrenninu. Ég og Femka frá Hollandi (sem er að læra söng og

syngur alveg eins og Norah Jones!) lentu hjá ótrúlega fínu fólki, Judy

og Dan. Hann var lobbyisti og fyrrum sjónvarpsmaður og hún þjálfar

sendiherra og maka (í hverju hef ég ekki hugmynd;)) og þau ákváðu að

bjóða íslenska sendiherranum í mat! Meira djúsí sögur fást á msn;)

 

Það var bara eitt á allri ráðstefnunni sem ég þoldi alls ekki. Maður úr

evangelísku kirkjusamtökunum kom og sagði hvernig samtökin hefðu áhrif á

þingið. Ég hef ekkert á móti að fólk sé trúað, hvaða trú sem um ræðir,

en það fer óstjórnlega í taugarnar á mér þegar fólk reynir að troða

trúnni sinni upp á aðra eða reynir að stjórna fólki með trú! Þessi karl

talaði eins og bandarískur prestur (Omega), sagði dæmisögur sem aðeins

var hægt að draga eina "rétta" ályktun af (en settar fram eins og við

gætum komist að okkar eigin) og svo rétti hann oft hendur upp í loft og

sagði "the power from above". Nú svo sat e-r fyrir aftan mig sem sagði í

sí og æ (og í fúlustu alvöru) "Amen, Amen". Á tímabili var ég ekki viss

hvað ég hefði komið mér í:S

 

Í þessari ferð kom mjög vel í ljós hvað Ísland er fáránlega lítið. Ég

hitti Ingrid frá Noregi sem þekkir Mæju vinkonu Aspar og Ingu, Hönnu frá

Þýskalandi sem þekkir Adda Hjartar og svo hitti ég Pálu sem þekkir

Þórhildi. Skemmtileg tilviljun.

 

Nú þegar átti að fara heim kom náttúrulega "snowstorm" og það var

þriggja tíma seinkun á flugvélinni minni. Ég var hins vegar mjög heppin

því flestum flugum var frestað en ég verð nú bara að segja að þetta var

sko enginn snjóstormur. Í fyrsta lagi var blanka logn og svo var kannski

5cm snjór (slyddusnjór) og sól, bara ótrúlega fallegt veður! Veðrið var

nú samt verra eftir því sem norðar dróg en það væri sko aldrei flogið á

Íslandi ef þetta væri standardinn.

 

En nóg um það og eitt er víst að ég þarf að fara til D.C. aftur því ég á

sko eftir að sjá helling þar.

717 views
0 faves
0 comments
Uploaded on February 14, 2006
Taken on February 12, 2006