Menntaskólinn að Laugarvatni er framhaldsskóli og heimvistarskóli, sem starfar eftir bekkjakerfi. Nánast allir nemendur skólans dvelja á heimavist og kaupa fæði í mötuneyti skólans. Tengsl nemenda innbyrðis og einnig við kennara og annað starfsfólk eru náin og persónuleg, og andrúmsloftið heimilislegt.