Back to photostream

Lífsbarátta & Okkar framtíð

 

Lífsbarátta máluð 1971. Eftirmynd gefin út 1974 í tilefni 1100 ára afmælis Íslandsbyggðar (stærð 51x71cm). Hvatningarkort gefið út í tilefni 50 ára afmælis Lýðveldisins og Landgræslusjóðs. Lífsbarátta + Okkar framtíð, texti saminn 1987 til stuðnings íslenskum iðnaði. Myndasett gefið út 2009. Mynd árituð af höfundi og textinn "Okkar framtíð" handskrifaður og áritaður af höfundi.

Lífsbarátta + Okkar framtíð, svartir rammar m. gleri, plastað. Verð kr. 8.000.

 

Textinn:

 

OKKAR FRAMTÍÐ

 

 

Góðir landsmenn

Boðskap flyt ég þjóðinni

Heillaráð um hagsýni

Svo tímabært í dag

 

Veljum íslenskt

Kaupum eigin framleiðslu

Tryggjum næga atvinnu

Eflum þjóðarhag

 

Íslenska þjóð

Vinnum að eigin hagsmunum

Ef varan er góð

Því að kaup´ana frá útlöndum

Íslenska þjóð

Stuðlum að innlendum viðskiptum

Verslum við okkur sjálf

 

Okkar framtíð

Byggist fyrst og fremst á samstöðu

Um að hlúa að því í landinu

Sem okkar lífsafkoma er háð

 

Veljum íslenskt

Kaupum eigin framleiðslu

Stöndum vörð um okkar menningu

Eflum alla dáð

 

Íslenska þjóð.....

 

Okkar líf er allt lögmálum háð

Það vex sem til er sáð

Með reisn horfum framtíðar til

Veljum leið næstu kynslóðum í vil

 

JGJ

 

154 views
0 faves
0 comments
Uploaded on May 12, 2009
Taken on May 12, 2009